ER ÞAÐ !!!!
27.10.2009 | 21:06
Hvað eru þeir að segja.
Hver var vendipunkturinn!
Hvert var innihald samningana!!
Nei bíddu það er ekki búið að semja, af hverju eru þeir (Vilhjálmur og félagar) að tala eins og allt sé orðið gott.
Er það ekki eins og að borða kjötið áður en búið er að veiða dýrið???
Mér finnst eins og allt þetta mál sé tilbúningur af Samtökum Atvinnulífsins og Ríkisstjórnarinnar til að halda okkur " vinnulýðnum " góðum og sýnast vera að gera eitthvað.
Staðan hefur lagast | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
hs orka hs veitur
23.7.2009 | 16:40
Kaupir 11% hlut HS Orku af Geysi | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
viðskipti eða ekki??
3.3.2008 | 15:34
ég meina sá gjörningur sem varð að þessu dómsmáli
ef banki er með afslátt á gjaldeyrisviðskiptum og sniðugt fólk kann að nota sér það
finnst mér það ekki refsivert.
ef hagkaup auglýsir vídeótæki á 1 kr og ég kaupi 50 stk og sel aftur á 15000 kr er það ekki refsivert.
afhverju eru bankar öðruvísi.
Dómari fer fram á 4 milljónir kr. í bætur | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
flugvallamál
29.1.2008 | 14:12
Breyting breytinganna vegna.
að vera eða vera ekki flugvöllur í Vatnsmýrinni
29.1.2008 | 14:10
Höfum við efni á að byggja nýjan flugvöll í Reykjavík.
Ég held ekki, og hver segir að ekki sé hægt að nota aðstöðuna á Keflavíkurflugvelli þá nánar varnarsvæðið.
Mér finnst ekki hægt að ætla að færa flugvöllinn í Reykjavík.
Leggjum hann niður og færum alla flugumferð til Keflavíkur.
Nú ef ekki látið þá flugvöllinn vera.
Mín skoðun !!
28.1.2008 | 00:32
Já eins og ég sagði í seinasta bloggi kosningar.
Mér finnst kosningar varla skipta máli lengur það er alveg sama hvað ég kýs. Segjum svo að ég kjósi flokk A vegna þess að mér lýst vel á fólkið í flokknum.
Segjum að minn flokkur vinni kosningarnar en er ekki með hreinann meirihluta, þarf hann þá að taka með sér í stjórn annann flokk til að mynda meirihlutastjórn, og í prosessinum þarf flokkurinn minn að stokka upp fólkinu sem ég var að kjósa?? halló hvað er að, það sem ég kaus er ekki lengur til og eitthvað skripildi komið í staðinn.
Önnur vitleysan er sú að flokkurinn minn hefur 2 vikur til að mynda stjórn, ef það tekst ekki þá fær flokkur B vald til að mynda stjórn og lýðræðið er fótum troðið.
Ég er með tillögu, hættum að kjósa um flokka og kjósum í staðin fólk á þing burtséð hvaða flokk þau eru í. Það mundi verða til þess að stjórnmálamenn þyrftu að efna loforð sín sem þeir gefa fyrir kosningar annars fá þeir ekki annað kjörtímabil.
Ég er ekki að segja að flokkar verði ekki leifðir, heldur að kosningar verði einstaklingskosningar.
Flokkar geti ennþá boðið fram lista en kjósendur hafi völina.
Útkoma kosninganna yrði þannig að einstaklingar burtséð frá hvaða flokk þau tilheyra eru í stjórn raðað niður eftir hlutfalli atkvæða.
Þannig verður stjórn landsins eins og almenningur vill.
Ísland best í heimi??
27.1.2008 | 21:54
Eða hvað?
Ég heyri alltaf hvað ég sé heppinn að hafa fæðst á Íslandi, hér sé lítið um glæpi, allir hafi í sig og á, en aldrei heyri ég fólk tala um ánægju með verðlagið, veðrið ja stundum og stjórnmál svo eitthvað sé nefnt.
Heppinn af því að það eru ekki nema 10 morð á ári, 3-4 nauðganir á viku, ótalin barnaníð á ári og handrukkanir, fólk lamið í miðbæ Reykjavíkur já og í Keflavík.
Með öllu þessu er maður svo líka látinn borga svimháa skatta sem ættu að fara í löggæslu t.d.
Á öðrum norðurlöndum er skattþrepakerfi, stighækkandi miðað við tekjur einstaklings.
Hér er fólki refsað fyrir að hafa ekki miklar tekjur, litla menntun eða fæddust í ranga fjölskildu.
Hei hvað með heilbrigðiskerfið !!!
Já einmitt lyf 4x dýrara en sömu lyf í Danmörku og lyfin framleidd á Íslandi !!
Ég átti heima í Finnlandi í 6 ár og þar var frítt að fara til tannlæknis til 40 ára aldurs, á heilsugæslustöðunum. Koma á bráðavaktina 500 kr skiptið eða árgjald 1000 kr.
Hér kostar 2500 - 4000 kr skiptið.
Að við þurfum að væla út 3 - 6 % kauphækkun á 3 ára tímabili þegar stjórnmálamenn okkar gefa sér 30% strax og við erum búin að kjósa þá í embætti.
Já Ísland er stórkostulegt, kostulegt, við erum eins og sauðir trúum alltaf stjórnmálamönnunum okkar.
Þeir geta lofað og lofað en þurfa ekki að standa við neitt sem þeir segja því þeir geta sagt eftir kosningar að það passi ekki eða sé ekki stefna flokksins, eða samstarfsins við aðra flokka.
þetta flokksræði er alveg að fara með mig.
Af hverju getum við ekki bara kosið einstaklinga á þing, ábyrga gjörða sinna. Ekki fólk sem segir að flokkurinn ráði.
en ég ætla að blogga um það seinna.
Gefið mér heilbrigðiskerfi sem er ekki svona dýrt, eða stjórnmálamanna kauphækkun.
Fer Dagur dagavillt ???
24.1.2008 | 20:13
Margt skrítið í Dags(kýr)hausnum.
Jæja nú blöskrar mér, Dagur sagði upphátt það sem ég hef verði að tala um.
Það er hann kom fram í sjónvarpi í kvöld 24.01.2008 og lýsti yfir að ef hann væri enn við völd myndi hann boða til kosninga!!!!
Halló hvað hef ég verið að segja.
Auðvitað á að boða til kosninga og átti að gera það strax fyrir 104 dögum síðan, eða þegar Dagur sjálfur tók við. Að tala nú um kosningar nú er eins og að hann sé að setja á sig bleyju eftir að hann sé búinn að kúka í buxurnar.
En þetta snýst ekkert um kosningar heldur völd og peninga ( að mínu mati).
Hvernig stendut til dæmis á því að Ólafur fær að vera borgarstjóri núna í nokkra mánuði og svo þegar Vilhjálmur hættir að fá biðlaunin sín þá tekur hann við sem borgarstjóri og Ólafur fer á biðlaun ( starfslokalaun ).
Er borgarstjóraembættið svo lítið eða auðvelt starf að það sé hægt að skipta út stjóranum eins ört og nærfötum.
Þarf borgarstjórinn ekki tíma til að aðlaðast í starfi?
Ef þetta væri fyrirtæki mundi svona vitleysa sundra því og tæki mörg ár að leiðrétta þetta allt saman.
Hvað með þennan skrípaleik með borgarstjóraskiptin Ólafur/Vilhjálmur. Sjá ekki allir að þarna er bara verið að leika sér með peninga borgarinnar.
Það lýtur út fyrir að valdarán sé orðið löglegt á íslandi.
síða
22.1.2008 | 20:19
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 21:18 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)