Bloggfærslur mánaðarins, júlí 2011

er þetta

er þetta eina leiðin til að losna við gömlu dekkin?
mig minnir að þetta sama hafi gerst fyrir u.þ.b. 10 árum síðan.
er ekki kominn tími til að færa Hringrás burtu frá höfuðborginni.

mbl.is Hafa náð tökum á eldinum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

enn ein björgunin á útivistarfólki

það eru margar leitirnar sem settar eru í gang ár hvert. leit að fólki allt frá brjálæðingum sem reyna einir, án allrar aðstoðar að þvera landið, eða vel skipulagðir hópar, með öll nýjustu samskiptartæki.

hver er neyðin hjá þessum gönguhóp, vel búið og vant fólk.
þau ættu bara að bíða af sér veðrið, þ,e, af því að það er vitað um þau og ekkert bjátar á.
mér finnst tíma og peningum vera sóað ,,, í þessu tilfelli að minsta kosti.

er ekki hægt að fara fram á að þeir sem ferðast um hálendi Íslands séu með einhverskonar tryggingu, björgunartryggingu sem hægt væri að nota til rekstrar björgunarsveitana. ég er ekki að segja að það eigi að fara að borga björgunarsveitarmönnum og konum kaup, nei heldur rekstur véla og tækja.
björgunarsveitirnar hafa misst mikið af sínum tekjustofni eftir að allir geta farið að selja flugelda.

þessi trygging þyrfti ekki að vera dýr, því margir eru að ferðast um fjöllin okkar og ekki þarf að bjarga öllum.


mbl.is Leit á Lónsöræfum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband